Viltu bæta heilsuna og upplifa andlega og líkamlega vellíðan? Viltu aðstoð við að breyta lífi þínu til hins betra með hollari lífsvenjum? Viltu fá hvíld frá amstri hversdagsins og setja sjálfa(n) þig í fyrsta sæti í eina helgi? Slástu þá í för með fagfólki sem mun leiða þig í allan sannleikann um nýjar leiðir að betra lífi.
Á HaPP dögum á Hótel Hengli kynnistu leið að betra lífi. Í þrjá daga færðu fullkomna næringu, hráfæði sem meistarkokkar frá HaPP elda á staðnum, fræðslu og fyrirlestra um málefni sem tengjast andlegri og líkamlegri heilsu. Þú ert leidd(ur) í gegnum slökun, jóga, íhugun og góða hreyfingu í fallegu og nærandi umhverfi. Þú lærir að setja þér markmið og færð leiðsögn um hvernig þú átt að ná þeim.
Innifalið í HaPP dögum:
Gisting í tvær nætur á Hótel Hengli við Þingvallavatn (hægt að bæta við auka nótt)
Fulkomin næring í þrjá daga – hráfæði frá matreiðslumönnum HaPP
Matreiðslunámskeið – Töfrar HaPP-eldhússins
Fyrirlestrar og reynslusögur um næringu og heilbrigði
Markmiðssetning
Hugleiðsla
Jógatímar
Hreyfing, líkamsrækt og útivist
Aðgangur að gufubaði og heitum potti
Einnig innifalið:
Eftirfylgni að lokinni HaPP-helgi
Afsláttur af matarpökkum frá HaPP
Afsláttur af matreiðslubókinni HaPP HaPP Húrra!
Verð:
HaPP helgi á Hótel Hengli kr. 39.000 á mann miðað við tvo í herbergi. HaPP helgi fyrir einn í herbergi: kr. 49.000.
Dagskrá 2012:
27. -29. apríl – Enn nokkur pláss laus. BÓKA HÉR
18. – 20. maí – Enn nokkur pláss laus. BÓKA HÉR
21. – 23. september – Laust. BÓKA HÉR
12. – 14. október – Laust. BÓKA HÉR
9. – 11. nóvember – Laust. BÓKA HÉR.
UPPSELT var á síðustu Happ daga. Allir þátttakendur söguð að þeir væru ánægðir eða mjög ánægðir með Happ daga í heild sinni. Upplifunin hafi verið engu lík og frábært veganesti til framtíðar.
Happ dagar eru haldnir á vegum Hótel hengils.
